jump to navigation

Julebrygg 26. nóvember, 2006

Posted by Stulli in Blogg.
4 comments

Jæja þegar ég byrjaði á þessu bloggi hérna talaði ég um að ég ætlaði að leyfa ykkur að fylgjast með verðlaginu á bjór hérna úti og þar sem ég er maður orða minna læt ég þessa mynd fylgja með, SKÁL!!

Julebrygg

Iðnaðarmenn 25. nóvember, 2006

Posted by Stulli in Blogg.
add a comment

Hvað er þetta með iðnaðarmenn og íbúðirnar þeirra? Málarar þurfa alltaf að búa í illa máluðum íbúðum, vaskarnir hjá pípurunum þurfa alltaf að leka og rafeindavirkinn þarf alltaf að vera með fullt af biluðum tækjum heima hjá sér. Þannig var þetta orðið í gær þegar að tölvan mín vildi ekki ræsa sig, en þá var þetta orðið þannig að eina raftækið sem var í lagi í stofunni var sjónvarpið, því að DVD spilarinn hafð gefið upp öndina fyrr í vikunni og vídjóið hefur verið bilað frá því áður en við fluttum hingað út og líklega þoldi playstation 2 vélin mín ekki flutningana hingað út því að hún hefur ekki virkað síðan hún kom upp úr kassanum hérna úti.

Ég semsagt tók mig til og réðist á hauginn og var byrjað á DVD spilaranum. Það var nú svo sem ekkert mikið að þar þannig að það var ekki nema svona klukkutími sem fór í að gera við hann. Næst var það vídjóið og eftir smá leit á netinu af teikningum gat ég ráðist á það. Það tók nú svo sem ekki langann tíma í að finna út hvað var að en það var annað mál að finna út AF HVERJU þetta var að. Eftir 3 tíma yfirlegu og jafn marga bjóra var ákveðið að skrúfa það aftur saman án þess að finna út úr því (Næst sleppi ég bjórnum). Í kvöld ætla ég síðan að athuga með tölvuna mína en líklega er diskur farinn í henni þannig að ég er ekkert svakalega bjartsýnn á að hún jafni sig.

Fórum í Fisketorvet í dag og það er greinilegt að jólavertíðin er að byrja því það var alveg nóg af fólki þarna svo sem. Eins og venjulega þegar farið er í þessar verslunarmiðstöðvarleiðangra er alltaf einn hápunktur, en það er þegar við loksins stígum út úr húsinu og ekki er ætlunin að fara aftur inn. Annars var annað sem gerðist sem mér fanst mjög fyndið en þegar við vorum að bíða eftir metroinum á Norreport kemur maður upp að Heiðu Dís og talar eitthvað við hana og Hún bendir honum á eina lest sem er að fara og hann stekkur af stað og rétt nær henni. Þegar lestin okkar er síðan komin niður á Kongens Nytorv fattar hún að hún hafi beint kallgreyinu í vittlausa átt því hann var einmitt á leið á Kongens Nytorv :D :D . Þetta fanst mér ekkert smá fyndið og hló mig mátlausann en konan að farast úr samviskubiti yfir þessu eins og sjá má hér.

Jæja nóg í bili.

Helgin Búin 15. nóvember, 2006

Posted by Stulli in Blogg.
add a comment

Jæja þá er þessi helgi búin. Hann Davíð vinur minn kom í heimsókn á fimmtudagskvöldið og var yfir helgina.

Vöknuðum eldsnemma á föstudeginum og fórum í lest til Söndeborg því Davíð vildi endilega fara og skoða skólann þeirra og var sú lestarferð alveg ágæt fyrir þær sakir að það mátti reykja í lestinni og hægt var að kaupa kaffi og gos þannig að ég held að ég hafi reykt hálfann pakka og drukkið 2 lítra af kaffi á tæpum 4 tímum. Þegar við komum til “borgarinnar” blasti við okkur þessi fallegi bær og fundum við leigubíl fyrir heppni sem skutlaði okkur í skólann. Ekki get ég sagt að skólinn hafi staðist væntingar okkar en maður hefur séð það verra svo sem (IR). Eftir að hafa fengið túr um skólann ákváðum við að fara og skoða aðal íslendinga kollegíið á svæðinu og röltum þangað. Þvílíkur óbjóður sem blasti þar við okkur… eldgömul teppi á stigagöngunum og allt drulluskítugt og ekki má gleyma því að það heyrðist þegar fólkið var að sturta niður inni í herbergjunum sínum, semsagt ekki hægt að fara á klóstið nema með vitneskju og helst samþykki nágrannana.

Ákveðið var að banka uppá hjá næsta íslendingi sem við fundum og spurja hvort það væri í lagi að fá að skoða herbergin sjálf. Sú sem við bönkuðum hjá þorði ekki að koma til dyra nema vera alveg viss um að við værum ekki einhverjir nauðgarar og lá við að hún hafi tekið vegabréfin okkar í pant á meðan.

Þá sagði hún okkur að það væri rosalega gaman í skólanum en ekki eins gaman að búa á þessu kollegíi þar sem það er brotist inn í íbúðirnar í hverri viku og ekki hægt að geyma neitt verðmætt í þeim ef maður fer út lengur en í 2 tíma. Enda þegar við vorum að fara sá ég að ég myndi líklega ná að brjótast þarna inn með matskeið að vopni, svo lélegar voru læsingarnar þarna. Þegar við ætluðum að taka síðan leigubíl á lestarstöðina eftir þessa heimsókn var bara ekki hægt að ná í leigubíl með nokkru móti. Þeir svöruðu ekki einu sinni símanum!!! Reyndum við að skokka á lestarstöðina til að ná lestinni en ekki séns á að ná því þannig að við eyddum 2 tímum í að skoða okkur um í bænum og náðum að labba bæinn endanna á milli á um það bil klukkutíma og ég meina kommon þú labbar ekki einu sinni Garðabæinn enda á milli á þeim tíma. Tókum síðan lestina heim 2 tímum seinna en áætlað var og var sú ferð langt frá því að vera eins og sú fyrri, lestin kjaftfull af fólki og fólk að spila tónlist á fartölvum og dvd spilurum hver ofan í annan þannig að það var varla líft þarna inni. Þrátt fyrir að hafa ákveðið að kíkja eitthvað út á lífið það kvöld var ákveðið að fresta því þar sem við vorum frekar þreyttir eftir þessa fýluferð.

Laugardagurinn fór í að verlsla í litlu verslanamiðstöðinni hérna rétt hjá. Þegar ég segi litlu þá meina ég að hún er svona næstum á stærð við kringluna en við föttuðum það fyrst þá að það er heil hæð ofaná þar sem við höfðum aldrei skoðað, héldum alltaf að þetta væri bara 2-3 fatabúðir í viðbót og kom þetta debetkortinu mínu verulega á óvart. Laugardaskvöldið fórum við í bæinn og eftir að hafa leitað af almennilegum pöbb enduðum við á einhverjum írskum á strikinu og sátum við þar og drukkum viskí og bjór ;) .

Sunnudagurinn fór í skoðunarferð um borgina og var byrjað í Kristjaníu, stórmerkilegur staður svo ekki sé meira sagt. Þarna sáum við stærsta halfpipe sem við höfðum séð og hunda ríðandi út á götu og enginn að skipta sér af því. Út á miðri götu voru nokkrir menn að selja gras og voru þeir ekkert að fela það því að fólk labbaði bara upp að þeim og rétti þeim pening og fengu pokann í staðinn úti á miðri götu. Síðan var farið að skoða hafmeyjuna og hvað er málið með hana eiginlega? Eftir að hafa labbað í rigningu og roki sáum við alt í einu svaka ljósashow og héldum við að það væri búið að lífga upp á styttuna en þá voru þetta bara einhverjir japanir með myndavélarnar á lofti sem orsakaði þessa bjarma, en ég get alveg sagt ykkur það að ef þið hafið séð hana á mynd að þá þarf ekki að fara og skoða hana því munurinn er enginn!

Svíðþjóð og glæpir 7. nóvember, 2006

Posted by Stulli in Blogg.
12 comments

Í gær fór ég með fjölskylduna í afmæli til vinafólks okkar sem býr í Svíþjóð. Tókum lestina yfir og átti síðan að sækja okkur á lestarstöðina í Örtofta (fyrir þá sem ekki vita hvar það er þá þýðir ekkert að spurja mig af því) Á leiðinni yfir í lestinni uppgötvuðum við það að símarnir okkar virka ekki í “útlöndum” og vorum við því símalaus megnið af ferðinni en ætlunin var að við myndum hringja og láta vita hvenær við værum að nálgast. Jæja við hugsuðum okkur bara að við myndum bara hringja í tíkallasíma þegar við kæmum og höfðum ekki miklar áhyggjur. En þegar við stigum út úr lestinni blasti við okkur EKKERT, eða svona næstum því, því að standa þarna í myrkrinu minnti mig svolítið á þegar ég var 14 ára að bíða eftir strætó út á Álftanesi kl 11 að kvöldi til. Semsagt minnsta lestarstöð sem ég hef séð og ekki tíkallasíma að sjá. Jæja sem betur fer sáum við þar sem bíll blikkaði okkur þegar við vorum að rölta af stöðinni og var það farið okkar sem gerði það.

Í afmælinu var íslenskur læknir sem tókst að fá mig til þess að missa allt álit á háskólanámi yfir höfuð en afmælisbarnið fékk svona leikfang þar sem maður á að troða kubbum í mismunandi formum ofan í þar til gerð göt og passaði hver kubbur aðeins í eitt gat. Nema hvað að hann tekur þetta upp og segir:,, Ég hlýt nú að geta leyst þetta þar sem ég er með háskólapróf” svo horfði ég á manninn í svona 2 mínútur að reyna að finna út hvernig átti að ná opna draslið og það var ekki fyrr en honum var bent á það hvernig þetta virkaði. Seinna sá ég hann síðan þar sem hann var að troða puttunum inn í gegnum rifurnar og reyna að koma kubbunum út í gegn um götin öfuga leið.

En að öðru: Þegar ég var komin heim úr afmælinu tók ég eftir því að einhver óprúttin aðili hafði komist yfir lykilorðið af síðunni og breytt fullt af smáatriðum, sett inn stafsetingarvillur eða réttara sagt leiðrétti það sem hann hélt að væri stafsetningarvillur, Breytti linkum og eitthvað svoleiðis. Hef ég ákveðinn mann grunaðan og er alveg á hreinu að hann fær ekki jólagjöf frá mér nema að hann viðurkenni glæpinn og borgi sekt sem ég hef enn ekki ákveðið hversu há hún verður en hún er allavega lægri núna heldur en í gær þegar ég var að fara yfir síðuna í leit af þessum breytingum öllum. Viðkomandi getur gefið sig fram með því að kommenta við þessa færslu

Chimay 5. nóvember, 2006

Posted by Stulli in Blogg.
3 comments

Ég fór í búðina áðan, svo sem ekki merkilegt nema bara fyrir það að þar sá ég soldið sem gerði það að verkum að hjartað tók aukaslag.

Chimay Blue í 1.5 lítra Magnum Flösku!!! en fyrir þá sem ekki vita að þá er Chimay blue konungur bjóranna og mun ég klárlega skella mér á eins og eina svoleiðis í nánustu framtíð. Spurning hver ætlar að drekka hann með mér? En ég mæli með því að fólk sem finnst bjór góður (þá meina ég bjór en ekki eitthvað hlandgult sull úr dós) að skella sér á einn svona. Mér skilst að hann fáist í Heiðrúnu.

Hér er mynd af gripnum.

Magnum


Nýtt blogg 5. nóvember, 2006

Posted by Stulli in Blogg.
add a comment

Jæja nú bætist enn eitt bloggið á internetið. Ég ætla nú að reyna að vera duglegur að segja ykkur frá verðinu á ölinu hérna úti og öðru áhugaverðu. En meira síðar.