Chimay 5. nóvember, 2006
Posted by Stulli in Blogg.trackback
Ég fór í búðina áðan, svo sem ekki merkilegt nema bara fyrir það að þar sá ég soldið sem gerði það að verkum að hjartað tók aukaslag.
Chimay Blue í 1.5 lítra Magnum Flösku!!! en fyrir þá sem ekki vita að þá er Chimay blue konungur bjóranna og mun ég klárlega skella mér á eins og eina svoleiðis í nánustu framtíð. Spurning hver ætlar að drekka hann með mér? En ég mæli með því að fólk sem finnst bjór góður (þá meina ég bjór en ekki eitthvað hlandgult sull úr dós) að skella sér á einn svona. Mér skilst að hann fáist í Heiðrúnu.
Hér er mynd af gripnum.
Ég er að sjálfsögðu fyrst að commenta
en já forvitin að sjá hvað kemur uppúr þér hér á blogginu. Kannski einhverjar fréttir sem ég veit ekki af aldrei að vita….
djísus.. gerir þú ekkert annað en að drekka bjór þarna úti! Ég kem í heimsókn 11-15 janúar hvort sem þið viljið mig eða ei! Kannski ég ´fai mér einn sopa með ykkur
Ég skal drekka hann með þér