Svíðþjóð og glæpir 7. nóvember, 2006
Posted by Stulli in Blogg.trackback
Í gær fór ég með fjölskylduna í afmæli til vinafólks okkar sem býr í Svíþjóð. Tókum lestina yfir og átti síðan að sækja okkur á lestarstöðina í Örtofta (fyrir þá sem ekki vita hvar það er þá þýðir ekkert að spurja mig af því) Á leiðinni yfir í lestinni uppgötvuðum við það að símarnir okkar virka ekki í “útlöndum” og vorum við því símalaus megnið af ferðinni en ætlunin var að við myndum hringja og láta vita hvenær við værum að nálgast. Jæja við hugsuðum okkur bara að við myndum bara hringja í tíkallasíma þegar við kæmum og höfðum ekki miklar áhyggjur. En þegar við stigum út úr lestinni blasti við okkur EKKERT, eða svona næstum því, því að standa þarna í myrkrinu minnti mig svolítið á þegar ég var 14 ára að bíða eftir strætó út á Álftanesi kl 11 að kvöldi til. Semsagt minnsta lestarstöð sem ég hef séð og ekki tíkallasíma að sjá. Jæja sem betur fer sáum við þar sem bíll blikkaði okkur þegar við vorum að rölta af stöðinni og var það farið okkar sem gerði það.
Í afmælinu var íslenskur læknir sem tókst að fá mig til þess að missa allt álit á háskólanámi yfir höfuð en afmælisbarnið fékk svona leikfang þar sem maður á að troða kubbum í mismunandi formum ofan í þar til gerð göt og passaði hver kubbur aðeins í eitt gat. Nema hvað að hann tekur þetta upp og segir:,, Ég hlýt nú að geta leyst þetta þar sem ég er með háskólapróf” svo horfði ég á manninn í svona 2 mínútur að reyna að finna út hvernig átti að ná opna draslið og það var ekki fyrr en honum var bent á það hvernig þetta virkaði. Seinna sá ég hann síðan þar sem hann var að troða puttunum inn í gegnum rifurnar og reyna að koma kubbunum út í gegn um götin öfuga leið.
En að öðru: Þegar ég var komin heim úr afmælinu tók ég eftir því að einhver óprúttin aðili hafði komist yfir lykilorðið af síðunni og breytt fullt af smáatriðum, sett inn stafsetingarvillur eða réttara sagt leiðrétti það sem hann hélt að væri stafsetningarvillur, Breytti linkum og eitthvað svoleiðis. Hef ég ákveðinn mann grunaðan og er alveg á hreinu að hann fær ekki jólagjöf frá mér nema að hann viðurkenni glæpinn og borgi sekt sem ég hef enn ekki ákveðið hversu há hún verður en hún er allavega lægri núna heldur en í gær þegar ég var að fara yfir síðuna í leit af þessum breytingum öllum. Viðkomandi getur gefið sig fram með því að kommenta við þessa færslu
Ég hef hvort sem er aldrei fengið jólagjöf frá þér.
við vitum samt alveg hver þú ert
Það var reyndar ekki ég sem setti inn þetta comment . Ég hefði sett það undir mínu nafni
Hmmm… fæ ég jólagjöf ef ég tek þetta á mig?
Ég gaf þér afmælisgjöf. það er nóg
Takk fyrir það kúturinn minn. Það var fallega af þér gert.
hver er ég?
Bara nóboddí sem þorir ekki að koma fram undir nafni
Hvernig verðið þið 11-15 janúar 2007=) Ég er komin með frí í vinnunni og ætla að skella mér í langa helgarferð til köben. Eins gott að ég fái að krassa í sófanum:)
Ég veit ekki einu sinni hvernig ég verð í næstu viku… hvað þá í janúar
Vissir þú Stulli að Þórður Magnússon á strúgi , kvað meðal annars rímur út af Karlamagnússögu og Fjósarímu . Ekki vissi ég þetta .
þá veistu það núna