Helgin Búin 15. nóvember, 2006
Posted by Stulli in Blogg.trackback
Jæja þá er þessi helgi búin. Hann Davíð vinur minn kom í heimsókn á fimmtudagskvöldið og var yfir helgina.
Vöknuðum eldsnemma á föstudeginum og fórum í lest til Söndeborg því Davíð vildi endilega fara og skoða skólann þeirra og var sú lestarferð alveg ágæt fyrir þær sakir að það mátti reykja í lestinni og hægt var að kaupa kaffi og gos þannig að ég held að ég hafi reykt hálfann pakka og drukkið 2 lítra af kaffi á tæpum 4 tímum. Þegar við komum til “borgarinnar” blasti við okkur þessi fallegi bær og fundum við leigubíl fyrir heppni sem skutlaði okkur í skólann. Ekki get ég sagt að skólinn hafi staðist væntingar okkar en maður hefur séð það verra svo sem (IR). Eftir að hafa fengið túr um skólann ákváðum við að fara og skoða aðal íslendinga kollegíið á svæðinu og röltum þangað. Þvílíkur óbjóður sem blasti þar við okkur… eldgömul teppi á stigagöngunum og allt drulluskítugt og ekki má gleyma því að það heyrðist þegar fólkið var að sturta niður inni í herbergjunum sínum, semsagt ekki hægt að fara á klóstið nema með vitneskju og helst samþykki nágrannana.
Ákveðið var að banka uppá hjá næsta íslendingi sem við fundum og spurja hvort það væri í lagi að fá að skoða herbergin sjálf. Sú sem við bönkuðum hjá þorði ekki að koma til dyra nema vera alveg viss um að við værum ekki einhverjir nauðgarar og lá við að hún hafi tekið vegabréfin okkar í pant á meðan.
Þá sagði hún okkur að það væri rosalega gaman í skólanum en ekki eins gaman að búa á þessu kollegíi þar sem það er brotist inn í íbúðirnar í hverri viku og ekki hægt að geyma neitt verðmætt í þeim ef maður fer út lengur en í 2 tíma. Enda þegar við vorum að fara sá ég að ég myndi líklega ná að brjótast þarna inn með matskeið að vopni, svo lélegar voru læsingarnar þarna. Þegar við ætluðum að taka síðan leigubíl á lestarstöðina eftir þessa heimsókn var bara ekki hægt að ná í leigubíl með nokkru móti. Þeir svöruðu ekki einu sinni símanum!!! Reyndum við að skokka á lestarstöðina til að ná lestinni en ekki séns á að ná því þannig að við eyddum 2 tímum í að skoða okkur um í bænum og náðum að labba bæinn endanna á milli á um það bil klukkutíma og ég meina kommon þú labbar ekki einu sinni Garðabæinn enda á milli á þeim tíma. Tókum síðan lestina heim 2 tímum seinna en áætlað var og var sú ferð langt frá því að vera eins og sú fyrri, lestin kjaftfull af fólki og fólk að spila tónlist á fartölvum og dvd spilurum hver ofan í annan þannig að það var varla líft þarna inni. Þrátt fyrir að hafa ákveðið að kíkja eitthvað út á lífið það kvöld var ákveðið að fresta því þar sem við vorum frekar þreyttir eftir þessa fýluferð.
Laugardagurinn fór í að verlsla í litlu verslanamiðstöðinni hérna rétt hjá. Þegar ég segi litlu þá meina ég að hún er svona næstum á stærð við kringluna en við föttuðum það fyrst þá að það er heil hæð ofaná þar sem við höfðum aldrei skoðað, héldum alltaf að þetta væri bara 2-3 fatabúðir í viðbót og kom þetta debetkortinu mínu verulega á óvart. Laugardaskvöldið fórum við í bæinn og eftir að hafa leitað af almennilegum pöbb enduðum við á einhverjum írskum á strikinu og sátum við þar og drukkum viskí og bjór
.
Sunnudagurinn fór í skoðunarferð um borgina og var byrjað í Kristjaníu, stórmerkilegur staður svo ekki sé meira sagt. Þarna sáum við stærsta halfpipe sem við höfðum séð og hunda ríðandi út á götu og enginn að skipta sér af því. Út á miðri götu voru nokkrir menn að selja gras og voru þeir ekkert að fela það því að fólk labbaði bara upp að þeim og rétti þeim pening og fengu pokann í staðinn úti á miðri götu. Síðan var farið að skoða hafmeyjuna og hvað er málið með hana eiginlega? Eftir að hafa labbað í rigningu og roki sáum við alt í einu svaka ljósashow og héldum við að það væri búið að lífga upp á styttuna en þá voru þetta bara einhverjir japanir með myndavélarnar á lofti sem orsakaði þessa bjarma, en ég get alveg sagt ykkur það að ef þið hafið séð hana á mynd að þá þarf ekki að fara og skoða hana því munurinn er enginn!
Ummæli»
No comments yet — be the first.