jump to navigation

Iðnaðarmenn 25. nóvember, 2006

Posted by Stulli in Blogg.
trackback

Hvað er þetta með iðnaðarmenn og íbúðirnar þeirra? Málarar þurfa alltaf að búa í illa máluðum íbúðum, vaskarnir hjá pípurunum þurfa alltaf að leka og rafeindavirkinn þarf alltaf að vera með fullt af biluðum tækjum heima hjá sér. Þannig var þetta orðið í gær þegar að tölvan mín vildi ekki ræsa sig, en þá var þetta orðið þannig að eina raftækið sem var í lagi í stofunni var sjónvarpið, því að DVD spilarinn hafð gefið upp öndina fyrr í vikunni og vídjóið hefur verið bilað frá því áður en við fluttum hingað út og líklega þoldi playstation 2 vélin mín ekki flutningana hingað út því að hún hefur ekki virkað síðan hún kom upp úr kassanum hérna úti.

Ég semsagt tók mig til og réðist á hauginn og var byrjað á DVD spilaranum. Það var nú svo sem ekkert mikið að þar þannig að það var ekki nema svona klukkutími sem fór í að gera við hann. Næst var það vídjóið og eftir smá leit á netinu af teikningum gat ég ráðist á það. Það tók nú svo sem ekki langann tíma í að finna út hvað var að en það var annað mál að finna út AF HVERJU þetta var að. Eftir 3 tíma yfirlegu og jafn marga bjóra var ákveðið að skrúfa það aftur saman án þess að finna út úr því (Næst sleppi ég bjórnum). Í kvöld ætla ég síðan að athuga með tölvuna mína en líklega er diskur farinn í henni þannig að ég er ekkert svakalega bjartsýnn á að hún jafni sig.

Fórum í Fisketorvet í dag og það er greinilegt að jólavertíðin er að byrja því það var alveg nóg af fólki þarna svo sem. Eins og venjulega þegar farið er í þessar verslunarmiðstöðvarleiðangra er alltaf einn hápunktur, en það er þegar við loksins stígum út úr húsinu og ekki er ætlunin að fara aftur inn. Annars var annað sem gerðist sem mér fanst mjög fyndið en þegar við vorum að bíða eftir metroinum á Norreport kemur maður upp að Heiðu Dís og talar eitthvað við hana og Hún bendir honum á eina lest sem er að fara og hann stekkur af stað og rétt nær henni. Þegar lestin okkar er síðan komin niður á Kongens Nytorv fattar hún að hún hafi beint kallgreyinu í vittlausa átt því hann var einmitt á leið á Kongens Nytorv :D :D . Þetta fanst mér ekkert smá fyndið og hló mig mátlausann en konan að farast úr samviskubiti yfir þessu eins og sjá má hér.

Jæja nóg í bili.

Ummæli»

No comments yet — be the first.