HAHA 7. desember, 2006
Posted by Stulli in Blogg.add a comment
Frekar fyndið
Það er þægilegt að hafa youtube þegar maður nennir ekki að skrifa neitt annað
Bjórsmakk 2. desember, 2006
Posted by Stulli in Blogg.1 comment so far
Jæja þar sem það er frekar mikið úrval af bjór hérna í verslunum hafði ég ákveðið að ég myndi nú reyna að vera duglegur að smakka sem mest af þessu öllu til þess að vera nú ekki að missa af neinu og þegar ég sá að eitthvað sem hét KB Juleöl var á tilboði 20 kall kippan var ég ekki lengi að setja eina kippu í körfuna. Þegar ég síðan smakkaði hann kom braðgið mér mjög á óvart en það minnti mig mjög á Egils Malt og þar sem þetta átti að vera bjór að þá var þetta eiginlega of sætt og klístrað til þess að vera gott. En þegar ég var að verða búinn með flöskuna las ég utan á hana og þar stóð að hann var eiginlega bara 1,7%, semsagt litlu meira en maltið, og sat ég því uppi með að eiga engann bjór á föstudagskvöldi og var því kvöldi því eiginlega fljótslúttað og farið snemma í háttinn, en það fyndna við þetta er síðan það að fyrst að “bjórinn” er í raun ekki bjór heldur meira svona eins og malt að þá varð hann ágætur á bragðið aftur og bíð ég eftir að gera önnur svona byrjendamistök og finn kanski eitthvað sem er eins og Egils Appelsín á bragðið
En hvað er hins vegar málið með lyftunna á Norreport?? Þetta er ein stærsta og fjölfarnasta lestarstöð borgarinnar og það er 1 lyfta sem á að þjóna metro og S lestunum og hún er ekki sú hraðasta í heimi og að auki að þá skiptir engu máli hvort þú veljir þér hæð til að fara á eða ekki því hún stoppar á ÖLLUM hæðum bæði á upp og niðurleið sem gerir það að verkum að ef þú af einhverjum orsökum kemst ekki inn í lyftuna strax, því gleymum því ekki að Norreport er mjög stór stoppistöð þar sem þar stoppar metro, S lestar og fyrir utan er strætó í flestar ef ekki allar áttir og er hún yfirleitt alltaf full, þarftu að bíða í um það bil 3 mínútur eftir að hún eigi leið framhjá aftur í rétta átt en ég komst ekki inn fyrr en í 3 ferð framhjá og missti ég þar af leiðandi af Metroinum heim. Frekar pirrandi… en ég kætti mig með því að koma við í ISO og kaupa mér julebrygg á 17,95 DKK (sjá fyrri færslu
)
BæBæ