jump to navigation

Blogg!! 26. janúar, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
1 comment so far

Nau haldiði ekki að ég sé bara að blogga. Annars er það að frétta af okkur hérna að við erum komin í stærri stærri íbúð og eru ég og konan því komin með okkar eigið herbergi og þurfum því ekki að vaða leikföng upp á hné sem húsráðandi hefur skilið eftir í hvert sinn sem við ætlum að leggja okkur. Nýja íbúðin er í annari blokk hérna á kollegiinu og er hún aðeins afsíðis þannig að það er meira næði en á móti kemur að maður þarf að fara út ef maður ætlar að þvo, sem þessa dagana er ekkert allt of sniðugt þar sem það er um það bil eins kalt eins og það getur orðið.

Annars var mér bent á góðann disk um daginn og er ég ekki frá því að þetta sé algjört meistarastykki en diskurinn heitir Worlds Apart með hljómsveitinni …And you will know us by the trail of dead. Mæli með því að fólk kíki á hann en hægt er að hlusta lög af disknum á linknum sem ég setti í síðustu færslu.

Annars veit ég ekki alveg hvert framhaldið á þessu bloggi verður þar sem ég hef bara ekki tíma til þess að vera alltaf að blogga (yeah right)

finetune 15. janúar, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
add a comment

finetune er síða sem ég mæli eindregið með en þarna er hægt að búa sér til playlista og hlusta á hann hvar og hvenær sem er og það kostar ekki neitt. Einnig er hægt að hlusta á playlista hjá öðrum og svo eru þeir með mjög fína lista á síðunni og mæli ég með því að fólk hlusti á Best of 2006 Rock en hann er mjög góður.