Vorið er komið 27. febrúar, 2007
Posted by Stulli in Blogg.add a comment
Já vorboði Kaupmannarhafnarbúa lét sjá sig í dag. Já þeir eiga sér sína eigin lóu en það má segja að manni hafi fundist sumarið bara vera á morgunn þegar ég sá betlarann sníkja pening á metrostöðinni í hádeginu í dag
Orðlaus 22. febrúar, 2007
Posted by Stulli in Blogg.add a comment
Þegar ég vaknaði í morgunn kom í ljós að það hafði snjóað svolítið um nóttina þannig að ég og Anika klæddum okkur vel áður en við fórum á leikskólann. Þegar út var komið var svona tæplega 10 cm snjór yfir öllu. Ekkert er óeðlilegt að öðru leyti en því að einn leikskólakennarinn spyr hvort að við lentum nokkuð í vandræðum með að komast á milli í snjónum. Nei svaraði ég en var samt ekki viss um að ég hafi skilið hana rétt. Þegar ég var búinn að skila barninu af mér og við hjónakornin vorum komin niður að metro stöðinni blasti við okkur ófögur sjón.
Svona um það bil 500 manneskjur stóðu þar og biðu eftir því að þær lestar sem voru á sporunum 2 leggðu af stað svo næstu gætu komist að til að taka upp fleiri farþega semsagt geðveiki!!!
Hættum við snarlega við að taka lestina og ákváðum að taka bara strætó í staðinn… Geðveikt hvað við vorum sniðug eða þannig því að þar tók ekkert betra við því manni leið eins og maður væri í biðröð á tónleika í laugardagshöllinni þvílíkur var mannfjöldinn sem var að slást um þessa nokkru dollur sem voguðu sér að stoppa hjá þeim. Við vorum ekki alveg að skilja hvað var í gangi því það var ekkert sem benti til þess að eitthvað væri í ólagi… enginn eldhnöttur sem var að stefna á okkur eða neitt
Ég gafst nú fljótt upp á þessu og fór bara heim og sótti hjólið og hjólaði í skólann, tók mig ekki nema svona 20 mínútur eða svo. Heiða Dís gafst upp á þessu og fór bara heim og fór að horfa á TV og þá var verið að vara fólk við að vera að fara út nema í algjörri neyð vegna veðurs! Helst átti eingöngu konum með hríðir að vera eina fólkið á ferli því það var allt á KAFI í snjó sem gerði það að verkum að fáar sem engar lestar gengu í Kaupmannahöfn og strætóarnir brunuðu um göturnar án þess að vita hvert þeir voru að fara því fréttir bárust að því að engir vagnar fóru inn í miðbæinn, bara frá honum. Semsagt heilt samfélag fór á hliðina út af smá snjókomu og ef þið haldið að ég sé eitthvað að ýkja með smá snjókomu skuluð þið bara sjá hvernig útsýnið var út um gluggan í morgun.
Þetta var nóg til þess að samfélag með milljónum manna lamaðist með öllu í nokkra klukkutíma og kalla þurfti út herinn til þess að koma fólki til síns heima.
Snakker Du Dansk 19. febrúar, 2007
Posted by Stulli in Blogg.6 comments
Mikið hefði ég viljað að ég hefði verið duglegur að læra þegar ég var á Íslandi því þá hefði ég kanski losnað við að þurfa að skrá mig í skóla hérna úti til þess að læra þetta tungumál og borga formúgu fyrir. Já ég semsagt fór áðan í stöðupróf eða Niveauplaceringstest ( svona er maður klár) til þess að láta meta hvar ég stend og prófdómarinn þurfti að ná sér í nýjann penna til þess að klára að fara yfir prófið mitt svo mikið þurfti hún að krassa á blaðið og hvað hafði ég upp úr þessu?? Næstu 6 vikurnar þarf ég að mæta 4 sinnum í viku í 4 tíma í senn til þess að læra Dönsku…. DÖNSKU af öllum hlutum
Eitt sem ég skil ekki er það að fólk frá Íslandi,Noregi,Sviss og EU löndunum þarf að borga 500 kall fyrir námskeiðið en ekki einhver pakistani sem er mættur hingað til þess að stofna sjoppu. Fólk sem veit af hverju það er má endilega útskýra fyrir mér þessa mismunun.
Drop In 18. febrúar, 2007
Posted by Stulli in Blogg.add a comment
Fór með Gretti á þennan stað í gær og holy shit hvað það var gaman. Þarna voru þeir með band sem spilaði frábæra músík allt frá Soundgarden til Robbie Williams og þótt að aldurshópurinn þarna hafi verið aðeins fyrir ofan okkur að þá skemmtum við okkur mjög vel og má segja að við (ég) höfum drukkið aðeins of mikinn bjór en þeir voru með mikið úrval af honum á krana.
Það sem mér finnst hins vegar merkilegast við þetta allt saman er það að ég reykti ekkert allt kvöldið en það er í fyrsta skipti sem það gerist og óska ég sjálfum mér til hamingju með það
Smá turnaround 16. febrúar, 2007
Posted by Stulli in Blogg.add a comment
Ég hef oft verið duglegur að gagngrýna það sem mér hefur fundist vera miður hérna í DK og ætla ég að breyta út af þeirri venju og tala um það sem mér finnst daninn hafa staðið sig vel. Fáum til furðu fjallar þetta blogg einmitt um bjór
.
Ég skrapp í búðina áðan til þess að reyna að finna út hvað ég ætlaði að hafa í matinn. Eftir að hafa labbað nokkra hringi í gegnum búðina fanst mér ég vera kominn með nógu mikið í körfuna til þess að geta haft sæmilegann kvöldmat svona á föstudegi og eins og svo oft áður að þá labba ég framhjá bjórdeildinni í búðinni og gríp með mér eina flösku af Leffe Brune svona áður en ég kom að kassanum en þetta er svona bjór sem er svakalega góður, en ekki etthvað sem maður drekkur dags daglega og hvað þá að maður geri sér ferð í ríkið til þess eins að kaupa sér hann, og gerir þessi ágæta stefna Danans að hafa bjór til sölu í verslunum það að verkum að maður getur kynnst með lítilli fyrirhöfn mikið af góðum bjór.
Einnig vill ég að það komi fram að ég er búinn að fá Dankortið í hendurnar aðeins 2 dögum eftir að ég sótti um það
Skál!!
Úps.. 16. febrúar, 2007
Posted by Stulli in Blogg.add a comment
Ég var eitthvað að vesenast á DomainGuru áðan þar sem ég keypti lénið fyrir síðu konunnar og alveg óvart þá keypti ég www.stulli.com líka og er því hægt að nálgast síðuna með því að slá inn www.stulli.com
Næsta skrefið er síðan að færa þetta blogg yfir á eigin vél svo ég geti hýst það sjálfur.
Visakort… alþjóðlegur gjaldmiðill…. 15. febrúar, 2007
Posted by Stulli in Blogg.add a comment
Ég lenti í því núna um daginn að ég ætlaði að kaupa mér ferð til útlanda í tilefni þess að við eigum 1 árs brúðkaupsafmæli og fundum þessa fínu ferð á netinu sem við pöntuðum.
Þegar það kom síðan að því að borga kom í ljós að það var ekki hægt að borga með visa… HA???? ER EKKI HÆGT AÐ BORGA MEÐ VISAKORTI Á NETINU??? Hvernig getur þjóð sem stærir sig af því að vera framarlega í tækniþróuninni verið með fyrirtæki sem halda úti verslunum á internetinu þar sem ekki er hægt að borga með visakorti? Nei það er bara hægt að borga með Dankorti (hvað er það??) eða Visa/Dankorti(??????).
Ég sá það að ef ég ætlaði mér að getað lifað eðlilegu lífi hérna í DK þá bara VARÐ ég að fá mér svona græju, fór í bankann og bað um svona Dankort. Stelpan í bankanum spurði mig hvort ég vildi fá venjulegt eða svona Visa/Dankort og ég spurði hver munurinn væri og tjáði hún mér það að venjulegt kort virkar eins og debetkort en er bara hægt að nota í DK en Visa/Dankort get ég notað sem alþjóðlegan greiðslumiðil þar sem þetta væri í raun bara eins og Visakort!!!! (Datt engum í hug að vera bara með visakort??) Nei veistu ég held að ég fái mér svona venjulegt bara.
Ég er allavega á leið til Mallorca í lok Mars þar sem þeir taka á móti alþjóðlegum gjaldmiðli eins og íslensku krónunni