jump to navigation

Orðlaus 22. febrúar, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
trackback

Þegar ég vaknaði í morgunn kom í ljós að það hafði snjóað svolítið um nóttina þannig að ég og Anika klæddum okkur vel áður en við fórum á leikskólann. Þegar út var komið var svona tæplega 10 cm snjór yfir öllu. Ekkert er óeðlilegt að öðru leyti en því að einn leikskólakennarinn spyr hvort að við lentum nokkuð í vandræðum með að komast á milli í snjónum. Nei svaraði ég en var samt ekki viss um að ég hafi skilið hana rétt. Þegar ég var búinn að skila barninu af mér og við hjónakornin vorum komin niður að metro stöðinni blasti við okkur ófögur sjón.

Svona um það bil 500 manneskjur stóðu þar og biðu eftir því að þær lestar sem voru á sporunum 2 leggðu af stað svo næstu gætu komist að til að taka upp fleiri farþega semsagt geðveiki!!!

Hættum við snarlega við að taka lestina og ákváðum að taka bara strætó í staðinn… Geðveikt hvað við vorum sniðug eða þannig því að þar tók ekkert betra við því manni leið eins og maður væri í biðröð á tónleika í laugardagshöllinni þvílíkur var mannfjöldinn sem var að slást um þessa nokkru dollur sem voguðu sér að stoppa hjá þeim. Við vorum ekki alveg að skilja hvað var í gangi því það var ekkert sem benti til þess að eitthvað væri í ólagi… enginn eldhnöttur sem var að stefna á okkur eða neitt :)

Ég gafst nú fljótt upp á þessu og fór bara heim og sótti hjólið og hjólaði í skólann, tók mig ekki nema svona 20 mínútur eða svo. Heiða Dís gafst upp á þessu og fór bara heim og fór að horfa á TV og þá var verið að vara fólk við að vera að fara út nema í algjörri neyð vegna veðurs! Helst átti eingöngu konum með hríðir að vera eina fólkið á ferli því það var allt á KAFI í snjó sem gerði það að verkum að fáar sem engar lestar gengu í Kaupmannahöfn og strætóarnir brunuðu um göturnar án þess að vita hvert þeir voru að fara því fréttir bárust að því að engir vagnar fóru inn í miðbæinn, bara frá honum. Semsagt heilt samfélag fór á hliðina út af smá snjókomu og ef þið haldið að ég sé eitthvað að ýkja með smá snjókomu skuluð þið bara sjá hvernig útsýnið var út um gluggan í morgun.

Þetta var nóg til þess að samfélag með milljónum manna lamaðist með öllu í nokkra klukkutíma og kalla þurfti út herinn til þess að koma fólki til síns heima.

Ummæli»

No comments yet — be the first.