jump to navigation

Ég er ekki í lagi 22. mars, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
add a comment

Ef einhver hefði gengið upp að mér fyrir 15 árum síðan og sagt að einhverntímann á lífsleiðinni ætti ég eftir að leggja metnað minn í að læra dönsku, hafa áhyggjur af því hvað ég kem til með að fá á næsta prófi og meira að segja borga fyrir að fá að læra þetta tungumál hefði ég líklega reynt að fá manninn lagðan inn á sjúkrahús.

Hér sit ég semsagt að farast úr áhyggjum yfir því hvort ég sé nógu vel undirbúinn fyrir dönskuprófið sem ég er að fara í næstu daga. Í fyrramálið er ég semsagt að fara í próf þar sem ég þarf að skrifa 2 stíla um efni sem ég veit ekki hvað verður og það á dönsku. Hvernig er hægt að undirbúa sig fyrir svoleiðis próf?

Best að hætta þessu bara og fara að sofa ekki satt?

Eða fá sér kanski bara bjór?

Allavega skoðið þetta á meðan ég ákveð mig.

Veikur 11. mars, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
add a comment

Ég er búinn að vera veikur núna í heila viku!!!

Hvað er í gangi? Ég er aldrei veikur lengur en í svona mestalagi 2 daga og ég man sjálfur ekki einu sinni eftir því að hafa nokkurn tímann á ævinni fengið hita en núna er ég búinn að liggja í móki heima með allt uppí 39,5 stiga hita heilu og hálfu dagana, og hef ekki sofið heila nótt síðan á laugardagsnótt. Núna er hitinn samt að mestu farinn en eftir situr kvef dauðans.

Sit hérna heima með dúndrandi hausverk að reyna að hafa mig í það að fara að lesa dönsku því ekki get ég sagt að ég hafi verið duglegur að vinna í henni í veikindunum. Vona bara að ég fái að halda áfram á þessu námskeiði en þeir eru víst frekar strangir á mætingu á þetta þannig að ég þarf ábyggilega að grenja eitthvað fyrir liðið, vonum bara að það takist.

Var síðan að átta mig á því að það er 11. mars í dag en ekki 8. eins og ég hélt sem þýðir það að ég er orðinn ansi tæpur á því að skila inn umsókn í DTU en henni þarf að vera skilað fyrir kl. 12 þann 15. eða eftir 4 daga!!!

Jæja ég er farinní sturtu (númer 2 síðan laugardaginn 4. mars, já ég veit) og síðan ætla ég að lesa dönsku.

Nýliðnir atburðir 3. mars, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
add a comment

Í ljósi nýliðinna atburða tel ég mig knúinn til þess að deila minni sýn á þennan stórmerkilega viðburð.

Vegna lélegrar sölu á grænum túborg undanfarin ár kom verksmiðjan með nýjung á markaðinn til þess að koma til móts við neytendur og fagna ég þeirri ákvörðun ákaft. Verksmiðjan kynnti núna fyrir skömmu 2 nýjar tegundir af túborg, hvítum og bláum, og hef ég smakkað aðra þeirra og var verulega ánægður með þá upplifun og verður hin afurðin smökkuð innan skamms.

Ps. Meiru geðsjúklingarnir þarna í Norrebro.