jump to navigation

Gleðilegt Sumar 27. apríl, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
1 comment so far

Ég ætlaði að láta ykkur vita hvernig veðrið hérna í Danmörku væri en svo rakst ég á þessa færslu hérna sem að pretty much sums it up.

Nema þegar talað er um að “vörka tanið”

Annars er seinni helmingur Vodafone að koma til Köben til að heiðra mig með heljarinnar veislu á morgunn, Fyrri helmingurinn kom síðustu helgi, Þannig að ég verð mikið upptekinn við að sinna þessu fólki og leyfa því að sjá mig. Þarf að byrja á því að fara með Robba og finna fyrir hann Chimay en ég tók eina flösku af honum heim um jólin og var hann svona svakalega hrifinn af honum að það þarf að fara í spes leiðangur til að finna samtals 8 flöskur. Þetta verður líklega svona í framtíðinni, hann kemur með lifrarpylsu og flatbrauð hingað út og ég kem með bjór handa honum þegar ég millilendi á Kef.

Best að draga stelpuna úr sturtuni áður en hún leysist upp þarna inni. (merkilegt að ég þurfi að slást við hana tvisvar í hvert sinn sem barnið fer í sturtu, fyrst til að koma henni inn og kostar það yfirleitt einhverjar skrámur, Á mér bara svo það sé á hreinu, og svo aftur þegar taka þarf stelpuna út og þurrka henni, einnig á mér bara svo það sé á hreinu.

Einn sniðugur fídus hérna á þessar síðu er sá að það er hægt að skilja eftir comment við þessa færslu. Endilega prófið.

Spurning 9. apríl, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
4 comments

Er einhver sem les þetta hjá mér?

Comment takk

Brúðkaupsferðin Búin 6. apríl, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
add a comment

Jæja núna á þriðjudag lauk brúðkaupsferðinni okkar hjóna og tókst ferðin með ágætum. Ég ætla samt ekki að láta ykkur hafa ferðasöguna því að mig grunar að hún eigi eftir að birtast hérna.

Það sem ég ætla að tala um eru flugferðirnar fram og til baka og gæði flugfélagana.

Á útleiðinni þurftum við að millilenda í Hamborg og var fyrri leggurinn tekinn með SAS vél með skrúfuhreyflum og var hávaðinn eftir því en plássið í vélinni var í minna lagi en slapp alveg vegna þess að flugið tók ekki nema 40 mínútur.

Seinna flugið var tekið með vél Lufthansa og þvílíkur lúxus. Leðursæti og nóg pláss til þess að meira segja ég gat teygt úr fótunum (Ekki það að ég sé einhver risi heldur er annað fólk yfirleitt dvergar) og liggur við að maður segi að sú flugferð hafi verið of stutt.

Heimferðin var tekin með Spanair og holy crap hvað þetta var hræðilegt.

Afhverju taka þeir ekki bara sætin úr vélunum og láta farþegana standa? Þeir eiga allavega ekkert annað eftir því að meira að segja ég var í vandræðum með að setja borðið niður fyrir framan mig vegna þess að maginn minn var fyrir. (Ekki það að ég sé eitthvað grannur heldur er annað fólk yfirleitt feitt.) Til þess að hreinlega komast í sætið þurfti ég að skáskjóta mér í það og hafa aðra löppina á ganginum. En það var alveg sama hversu mikið ég reyndi að hafa löppina mína út í kanti til þess að vera ekki fyrir fólki þá þurftu helvítis flugfreyjurnar annað hvort að sparka í hana eða að fara í torfærur með matarvagnana á tánum mínum.

Þegar líða tók á flugið var eina stellingin sem ég gat setið í þannig að ég lá á hægri hendinni minni með öxlina sirka 5 cm út á ganginn og þrátt fyrir að allir farþegar sem löbbuðu framhjá mér gátu komist leiðar sinnar fram hjá mér án þess að rekast í mig þá þurftu djöfulsins flugfreyjurnar ALLTAF að reka stóru og feitu rassana sína í mig.

Ég mun ALDREI fljúga með Spanair aftur! Svo hræðilegt að ég sendi þeim kvörtun.

Dear Spanair people….

FUCK YOU!!!

Best regards

A former customer.

Nei ég sendi þetta ekki.