jump to navigation

Gleðilegt Sumar 27. apríl, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
trackback

Ég ætlaði að láta ykkur vita hvernig veðrið hérna í Danmörku væri en svo rakst ég á þessa færslu hérna sem að pretty much sums it up.

Nema þegar talað er um að “vörka tanið”

Annars er seinni helmingur Vodafone að koma til Köben til að heiðra mig með heljarinnar veislu á morgunn, Fyrri helmingurinn kom síðustu helgi, Þannig að ég verð mikið upptekinn við að sinna þessu fólki og leyfa því að sjá mig. Þarf að byrja á því að fara með Robba og finna fyrir hann Chimay en ég tók eina flösku af honum heim um jólin og var hann svona svakalega hrifinn af honum að það þarf að fara í spes leiðangur til að finna samtals 8 flöskur. Þetta verður líklega svona í framtíðinni, hann kemur með lifrarpylsu og flatbrauð hingað út og ég kem með bjór handa honum þegar ég millilendi á Kef.

Best að draga stelpuna úr sturtuni áður en hún leysist upp þarna inni. (merkilegt að ég þurfi að slást við hana tvisvar í hvert sinn sem barnið fer í sturtu, fyrst til að koma henni inn og kostar það yfirleitt einhverjar skrámur, Á mér bara svo það sé á hreinu, og svo aftur þegar taka þarf stelpuna út og þurrka henni, einnig á mér bara svo það sé á hreinu.

Einn sniðugur fídus hérna á þessar síðu er sá að það er hægt að skilja eftir comment við þessa færslu. Endilega prófið.

Ummæli»

1. helga systir - 28. apríl, 2007

ótrúlega sniðugt að það sé hægt að gera komment hér, það er einmitt hægt á mini síðu líka..

En ég vil samt ekkert hafa gott veður hér heima, allavena ekki næstu tvær vikurnar! Ég er í prófum og hef ekki tíma til að fara í sólbað eða sund. Ég þarf að læra..

Samt skrítið að þú skulir hafa sett mig í sama flokk og ólínu í kommentinu til mín um daginn. Mér hefur yfirleitt verið líkt við persónuleikann þinn, ekki nema þú viljir draga sjálfan þig niður með:)

love