Helgin 20. maí, 2007
Posted by Stulli in Blogg.2 comments
Alveg er þetta merkilegt.
Núna eru Heiða Dís og Anika Rut á Íslandi og ég því alveg aleinn heima. Svona leit dagskráin út hjá mér fyrir helgi:
Njóta kyrrðarinnar og sofa út, kanski kíkja út í smá bjór og sofa út.
Svona var dagskráin hins vegar:
Vakna klukkan hálf 8 án þess að hafa vekjaraklukku, hvað er það eiginlega?
Fékk mér smá bjór yfir Boston Legal og fór seint að sofa, PARTÝ!!!
Vakna smá þunnur klukkan daddara…… hálf 8!!!
Jæja meiri tími til þess að njóta sólarinnar í dag.
Einn minnispunktur:
Ef ég er beðinn um að laga eitthvað, ekki gera ráð fyrir því að út af því bilunin sé flókin fyrst að sá sem bað um hjálp hafði eytt klukkutíma í að reyna að gera við upp á eigin spýtur.
Á fimmtudagskvöld fór rafmagnið af íbúðinni hjá stelpunum sem búa við hliðina á okkur og komu þær yfir til þess að fá lánað öryggi (tók smá tíma þar sem ég var ekki alveg að skilja hvað þær voru að tala um, hélt að þær væru að selja mér tryggingu). Klukkutíma seinna komu þær aftur og báðu mig um að hjálpa sér og það fyrsta sem ég gerði var að skrúfa öll öryggin úr og grandskoða þau og mæla… já ég náði í rafmagnsmælinn minn. Þegar það var búið fór mig að gruna að öryggjaboxið væri bilað en með því að nota ljósdíóður til að lýsa mér gat ég ekki séð neitt að því heldur. Mundi ég þá eftir því (já alltof seint) að kanski væri betra að slá út höfuðrofanum ef það skyldi nú vera straumur einhverstaðar á boxinu og ýtti ég á takkan um leið og ég fékk smá svitakast (hvernig gat ég gleymt þessu?) en ekkert gerðist. Prófaði ég þá að snúa höfuðrofanum og við það kom ljós.
Þarna hafði ég eytt um það bil 10 mínútum í eitthvað sem hefði getað tekið 30 sekúndur ef ég hefði ekki byrjað á vitlausum enda og það er, ef þið vissuð það ekki, akkúrat sá tími sem það tekur mig að drekka einn bjór.
Þvílík tímasóun.
Þær þökkuðu hinsvegar vel fyrir sig með því að færa mér snúða í gærkvöldi og sögðu mér að þær hefðu bakað þá sjálfar.
Því sit ég hér og borða ilmandi þurra kanilsnúða í morgunmat.