jump to navigation

Ströndin 12. júní, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
trackback

Jæja nú hefur hitastigið hérna í köben hangið í kringum 30 gráðurnar síðan á miðvikudag og hafa eftirmiðdagarnir farið að mestu í það að slaka á úti í sólinni en þá er loksins hægt að fara út án þess að deyja.

Fórum á ströndina á laugardag með Erni, Elínu, Gumma og Fjólu ásamt börnum. Alveg svakalega fínn dagur að öllu leiti nema einu. Ég fékk svo heiftarlega í bakið að það leið næstum yfir mig af sársauka og gat ég ekkert gert nema að láta mig falla fram fyrir mig og liggja þannig.

Eftir að hafa legið í sandinum í 2 tíma treysti ég mér til þess að láta reisa mig upp en það varð samt þannig að ég rétt náði að klifra upp á reiðhjól þar sem ég var síðan teymdur áfram.

Öðrum klukkutíma seinna var ég orðinn nógu góður til þess að hjóla heim á þríhjóli þar sem ég þurfti ekki að halda jafnvægi.

Núna er ég orðinn þannig að ég næ að klæða mig sjálfur. Get ekki legið mjög lengi og get setið ennþá styttra.

Bjór í kvöld.

Berlín á fimmtudag.

Ummæli»

No comments yet — be the first.