Update 12. júlí, 2007
Posted by Stulli in Blogg.trackback
Jæja það er orðið ansi langt síðan ég skrifaði síðast en það hefur kanski ekki mikið gerst.
Skrapp til Berlínar í júní til að hitta frænku mína sem var einstaklega gaman. Á föstudagskvöldið var okkur boðið í sjónvarpsturninn til þess að borða en veitingastaðurinn er í 207 metra hæð og var það mjög gaman.
Það hefur rignt stanslaust í 4 vikur og er ég orðinn frekar þreyttur á því að þurfa að drekka allan bjórinn minn innandyra.
Konan er með saumaklúbb þannig að mér var hent út og sit ég því hérna heima hjá Erni og blogga þar sem það er eiginlega ekki hægt að ná sambandi við hann því hann er að spila WOW.
læt eina mynd frá Berlín fylgja með svona í lokin.
Brandenborgarhliðið í baksýn

myndarleg mæðgin!
Flott mynd af Brandenburgarhliðinu. Manstu tilfæringarnar hjá myndasmiðnum
Gleymi þeim seint. Gleymi heldur ekki hversu dýr þessi staður var.
Já alveg rétt. Var búin að gleyma því. En þetta er frægur staður. Sá það í einhverjum ferðabæklingi