Jæja 23. ágúst, 2007
Posted by Stulli in Blogg.trackback
Það hefur ýmislegt gerst síðan síðast en þar ber fyrst að nefna að ég komst inn í skólann og byrja núna 3. september. Smá blanda af tilhlökkun og kvíða einkennir sálarlífið. Búinn að taka fram stærðfræðibókina og er byrjaður að lesa hana til að undirbúa mig. Gaman.
Fórum í brúðkaup um daginn og var það vægast sagt mjög gaman þrátt fyrir að brúðguminn hafi verið veikur heima.
Erum að fara til svíþjóðar í dag ásamt Erni, Elínu, Arnari, Ástu, Sigga og Huld. Ætlum að gista hjá vinafólki Arnar og Elínar.
Verðum á heimaslóðum Emils í Kattholti í Smálöndunum.
Jæja nenni ekki að skrifa um allt sem hefur gerst. Ég verð bara að hafa færslurnar fleiri í framtíðinni.
Ummæli»
No comments yet — be the first.