Internetleysi 25. september, 2007
Posted by Stulli in Blogg.9 comments
Þetta orð er hræðilegt!
Ég fæ gæsahúð í hvert sinn sem ég heyri það og ég tárast þegar ég upplifi það sjálfur.
Á föstudagskvöld lenti ég í því að netið datt út hjá mér og skal ég alveg viðurkenna það að það var algjörlega mér að kenna þar sem ég slysaðist til þess að gera soldið sem er algjörlega bannað og hef ég sjálfur oftar en einu sinni blótað öðru fólki sem hefur gert þetta.
Fór á laugardeginum og talaði við gaurinn í computerudvalginu og mér leið eins og ég hefði verið misnotaður. Ég útskýrði vandamálið fyrir honum og sagði honum hvað ég hefði gert og hvað þyrfti að gera en það eina sem hann vildi var að ég myndi koma með tölvuna með mér svo hann gæti athugað hvort að vandamálið væri í henni og það var alveg sama hvernig ég reyndi að útskýra fyrir honum að tölvan væri ekki biluð, hann sagðist ekkert geta gert nema að hann fengi að skoða tölvuna. Þegar ég kom síðan með hana varð mér ekki um sel þegar ég sá hvað lifnaði yfir honum við að sjá að ég var með Dell og segir, and I qoute:”Oooh Dellll, wewy nice” með frekar hásri röddu. Þegar hann síðan sagði mér að út af því að tölvan var í lagi að þá gæti hann ekki gert neitt fyrir mig og að ég þyrfti að senda póst á netstjórann þeirra þurfti ég aqtually að loka augunum og telja upp á 10 til að koma í veg fyrir að ég kyrkti kvikindið. Svo þegar ég benti honum á það að þar sem ég væri internetlaus (gæsahúð aftur) ætti ég smá erfitt með að senda honum póst ypti hann bara öxlum og sagðist ekki geta hjálpað mér.
Eftir að hafa stolist inn á þráðlaust net í blokkinni minni og sent þennan blessaða póst kom netið aftur á um klukkan 8 á sunnudagskvöldið og ekki seinna vænna þar sem ég og konan vorum að verða uppiskroppa með umræðuefni.
Skóli og fleira 18. september, 2007
Posted by Stulli in Blogg.4 comments
Jæja nú er skólinn byrjaður á fullu og líst mér ágætlega á þetta. Þessi önn er samt eiginlega alveg eins og önnin sem mér fanst svo leiðinlega í fyrra en hún er ekki alveg eins vonlaus samt. Það hjálpar líka mikið til að Helgi félagi minn hætti í DTU og kom yfir í IHK á sömu braut þannig að við erum saman í tímum.
Daninn kom mér reyndar mjög á óvart því að hann var mættur í skólann daginn eftir að hann sótti umm og með skólaskírteinið í hendurnar á undan mér.
Kíktum á skólabarinn á föstudaginn og án þess að ég ljúgi nokkru þá er hann svipaður að stærð og Players. Poolborð, Airhockey, borðtennis og foozball borð út um allt og bjór á “studentevenlige priser” Partí þar næsta föstudag.
Á afmæli á morgunn og ætla ég mér því að taka því rólega og vera bara heima. (Er hvort sem er með Helga til að taka glósur)
hættur í bili.