Áhugamál 28. október, 2007
Posted by Stulli in Blogg.5 comments
Mig vantar eitt svoleiðis núna fyrst að Ferrari eru búnir að taka þessa McLaren svindlara og jarða þá.
Þetta áhugamál þarf að uppfylla nokkur skilyrði:
Það má helst bara verða iðkað um helgar á milli klukkan 14 til 19ish…
Má ekki vera of time consuming (Nenni ekki að stunda þetta allar helgar…)
Hvert skifti má ekki taka lengri tíma en 2 tíma. ( I’ve got other stuff to do…)
Verður að vera nokkuð almennt áhugamál. (Nenni ekki að stunda það einn.)
Má ALLS ekki fela í sér líkamlega áreynslu…(Do I need to explain???) .
Má helst ekki kosta of mikið. ( Á konu sem gæti dottið í hug að skreppa til útlanda sisona og þarf að eiga pening fyrir því.)
Helst þyrfti ég að geta neytt áfengis á meðan. ( Do I need to explain that to???.)
Verst hvað mér finst leiðinlegt að horfa á fótbolta…
Annars er tilefni til þess að óska Hamilton-mönnum til hamingju með árangurinn…. Aldrei hefur heimsmeistaratitill tapast jafn hratt og með jafn afgerandi hætti í sögu íþróttarinnar.

Eru þeir að leiðast???
Hjólatúr 9. október, 2007
Posted by Stulli in Blogg.5 comments
Í morgunn hjólaði ég í skólann. Alls rúmlega 16 kílómetra og þar af rúmlega 18 kílómetra upp í móti.
Þarf að hjóla heim aftur… Eða nei… ætla bara að vera hér.