jump to navigation

Áhugamál 28. október, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
trackback

Mig vantar eitt svoleiðis núna fyrst að Ferrari eru búnir að taka þessa McLaren svindlara og jarða þá.

Þetta áhugamál þarf að uppfylla nokkur skilyrði:

Það má helst bara verða iðkað um helgar á milli klukkan 14 til 19ish…

Má ekki vera of time consuming (Nenni ekki að stunda þetta allar helgar…)

Hvert skifti má ekki taka lengri tíma en 2 tíma. ( I’ve got other stuff to do…)

Verður að vera nokkuð almennt áhugamál. (Nenni ekki að stunda það einn.)

Má ALLS ekki fela í sér líkamlega áreynslu…(Do I need to explain???) .

Má helst ekki kosta of mikið. ( Á konu sem gæti dottið í hug að skreppa til útlanda sisona og þarf að eiga pening fyrir því.)

Helst þyrfti ég að geta neytt áfengis á meðan. ( Do I need to explain that to???.)

Verst hvað mér finst leiðinlegt að horfa á fótbolta…

Annars er tilefni til þess að óska Hamilton-mönnum til hamingju með árangurinn…. Aldrei hefur heimsmeistaratitill tapast jafn hratt og með jafn afgerandi hætti í sögu íþróttarinnar.

Eru þeir að leiðast???

Eru þeir að leiðast???

Ummæli»

1. mamma - 29. október, 2007

Varstu ekki að tala um að þér vantaði lopapeysu. Hvernig væri að byrja að prjóna. Önnur hver helgi, 2 klt í senn, hægt að fylgjast með umhverfninu á meðan, felur ekki í sér líkamlega áreynslu nema fyrir putta, kostar ekki mikið. Kannski þetta með áfengið passi ekki alveg, allavega ekki þegar þú gerir munstrið en við slétta prjónin er alveg hægt að fá sér smá.

2. konan - 29. október, 2007

Ja tek undir lopapeysuna með mömmu þinni…. þa eru allavegana til aurar fyrir mig að skreppa aftur til Berlin eða eitthvað skemmtilegt. :)

3. Stulli - 30. október, 2007

Já en vandamálið er samt að hendurnar verða of uppteknar til þess að lyfta áfenginu og þar með er búið að slátra þessu…
Kanski hægt að nota rör?

4. konan - 31. október, 2007

ja folk reddar se nu :)

5. HelgaLovísaKemp - 1. nóvember, 2007

sko þú getur náttla alltaf fengið þér svona húfu, setur bjór ofan í glas sem er fast við húfuna, og svo er svona rör sem er uppí munninum á þér allan tíman..Mér líst vel á þetta áhugamál, enda langar mér rosalega mikið í eina þannig, Ertu til í að gera eina fyrir mig, væri fínt ef hun væri svört með brunu og hvitu munstri.. Og rennilás væri FRÁBÆRT! Takk elsku bróðir!!