Alveg ótrúlegt. 26. nóvember, 2007
Posted by Stulli in Blogg.1 comment so far
Það bregst ekki að í hvert einasta skifti sem ég er búinn að sætta mig við það hvað daninn getur verið vangefinn stundum tekur hann sig til og hækkar viðmiðið.
Fór í búð í dag að versla og hljóðaði reikningurinn upp á heilar 82 krónur. Ég rétti henni 200 kall og segi síðan að ég eigi til 2 krónur þannig að ég geti fengið 120 kall til baka í staðin fyrir 118 ( fyrir ykkur sem eigið í vandræðum með að reikna). En afgreiðslustúlkan segir einfaldlega að það sé orðið of seint því hún sé búin að stimpla inn 200 og geti þar af leiðandi ekki tekið við þessum 2 krónum. Ég trúði þessu ekki og bað hana um að endurtaka þetta því ég var viss um að ég hefði misskilið hana.
Alveg ótrúlegt hvað þeir þurfa að gera mikið vesen út af hverjum einasta djöfuls hlut.
Jólin eru að koma. 1. nóvember, 2007
Posted by Stulli in Blogg.1 comment so far
Jæja
Á morgun byrjar jólahátíðin hjá mér og að því tilefni er við hæfi að ræða jólagjafalistann.
Mig langar í grafíska reiknivél í jólagjöf, nánar tiltekið þessa hér .
Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta svona snemma er sú að áhugasamir gefendur (já þú) hafa tíma til þess að nálgast hana í USA hún er meira en helmingi ódýrari þar heldur en hér.
Svona er ég hugulsamur.


