Alveg ótrúlegt. 26. nóvember, 2007
Posted by Stulli in Blogg.trackback
Það bregst ekki að í hvert einasta skifti sem ég er búinn að sætta mig við það hvað daninn getur verið vangefinn stundum tekur hann sig til og hækkar viðmiðið.
Fór í búð í dag að versla og hljóðaði reikningurinn upp á heilar 82 krónur. Ég rétti henni 200 kall og segi síðan að ég eigi til 2 krónur þannig að ég geti fengið 120 kall til baka í staðin fyrir 118 ( fyrir ykkur sem eigið í vandræðum með að reikna). En afgreiðslustúlkan segir einfaldlega að það sé orðið of seint því hún sé búin að stimpla inn 200 og geti þar af leiðandi ekki tekið við þessum 2 krónum. Ég trúði þessu ekki og bað hana um að endurtaka þetta því ég var viss um að ég hefði misskilið hana.
Alveg ótrúlegt hvað þeir þurfa að gera mikið vesen út af hverjum einasta djöfuls hlut.
þess vegna er langt best að búa á íslandi.. En annars er ekki skrifað “skifti”.. það er “skipti”