Loksins 22. janúar, 2008
Posted by Stulli in Blogg.add a comment
Í dag gerði ég svolítið sem ég held að ég geti fullyrt að ég hafi ekki gert í allavega 10 ár. Eftir að hafa farið með Aniku á leikskólann settist ég niður fyrir framan sjónvarpið og hef setið þar í allan dag að spila Playstation. Prófin kláruðust í gær, og var ég ákveðinn í því að gera ekki neitt uppbyggilegt í dag og hef ég svo sannarlega staðið við það. Ef ég hefði ekki þurft að sækja Aniku aftur núna seinnipartinn og elda kvöldmat þá væri ég líklega ennþá að spila og ef Heiða Dís kemur ekki snemma heim í kvöld þá verður spilað aftur eftir mat.
En já prófin kláruðust í gær og þrátt fyrir að þetta hafi gengið vel er ég einstaklega ósáttur við framkvæmd síðasta prófsins, en fanst mér spurningarnar vera mjög ruglingslegar og eiginlega vera þannig orðaðar að við áttum helst ekki að geta svarað þeim og engan vegin í samræmi við það sem hefur farið fram í kennslustundum en það er mikil breyting frá 2 fyrri prófunum. Eftir að hafa setið undir skothríð kennarans í 15 mínútur var ég sendur fram á meðan kennarinn og sensorinn ræddu frammistöðu mína og annara í hópnum. Eftir um 5 mínútur hópurinn minn kallaður inn ( allir í einu) og þá hófst en ein skothríðin þar sem bæði kennarinn og sensorinn hraunuðu yfir okkur og bentu á allt það sem betur mætti fara og fanst mér hrokinn vera svo yfirgengilegur að ég átti varla til orð en þarna var setningum eins og “Why on earth would you do something like this” og orð eins og “lousy” kastað á okkur. Eftir þetta gefur hann okkur einkunn byggða á því hvernig okkur gekk í prófinu og voru þær 2, 4, 7 og ég fékk 10 og lætur síðan fylgja með að sá sem fékk 2 hafi verið heppinn að fá þessa 2 og þar með ná áfanganum. En jæja þetta er búið og einkunnir eru semsagt þessar:
Forritun:12
Stærðfræði: 10
Rökrásir:10
Gefið er eftir 7 stiga skala og eru einkunnir -3, 0, 2, 4, 7, 10 og 12 og þurfum við að ná 2 til þess að standast prófið. (Ekki spurja mig af hverju það er hægt að fá -3) .
Núna tekur við 10 daga törn í því að finna út hvernig ég get gert sem minnst allan þennan tíma.
Home sweet home 5. janúar, 2008
Posted by Stulli in Blogg.1 comment so far
Jæja þá er maður komin heim frá Íslandi eftir 2ja vikna ofát. Held að ég geti fullyrt að ég hafi aldrei fundið til svengdar á þessum tíma. Vorum hjá tengdó á aðfangadag og mömmu á gamlárskvöld. Þurfti að taka með mér skólabækur og læra í jólafríinu og þó það hafi gengið ágætlega þá hefði það alveg getað gengið betur.
Fyrsta próf á mánudag og næsta þriðjudaginn 15. janúar. Þriðja og síðasta prófið er síðan 21. eða 22. janúar og er ég þá kominn í viku frí.
Flugið heim var allt í lagi ef frá er talið flugtakið. Fanst vélin vera að hækka sig frekar hægt og á tímabili jafnvel vera að tapa hæð. Hafði samt ekki neinar ofuráhyggjur af því þar sem ég sat við neyðarútgang.
Fiskarnir voru allir á lífi eftir að hafa verið skildir eftir einir síðan 26. desember og fékk ég hlýjar mótökur frá þeim er ég steig inn úr dyrunum. Var reyndar allur maturinn þeirra búinn en þeir átu bara gróðurinn í staðinn þannig að búrið er hálftætt eftir þá en það hlýtur að vera hægt að redda því við tækifæri.
Best að hætta þessu og fara að læra fyrir forritunarprófið.