jump to navigation

Loksins 22. janúar, 2008

Posted by Stulli in Blogg.
trackback

Í dag gerði ég svolítið sem ég held að ég geti fullyrt að ég hafi ekki gert í allavega 10 ár. Eftir að hafa farið með Aniku á leikskólann settist ég niður fyrir framan sjónvarpið og hef setið þar í allan dag að spila Playstation. Prófin kláruðust í gær, og var ég ákveðinn í því að gera ekki neitt uppbyggilegt í dag og hef ég svo sannarlega staðið við það. Ef ég hefði ekki þurft að sækja Aniku aftur núna seinnipartinn og elda kvöldmat þá væri ég líklega ennþá að spila og ef Heiða Dís kemur ekki snemma heim í kvöld þá verður spilað aftur eftir mat.

En já prófin kláruðust í gær og þrátt fyrir að þetta hafi gengið vel er ég einstaklega ósáttur við framkvæmd síðasta prófsins, en fanst mér spurningarnar vera mjög ruglingslegar og eiginlega vera þannig orðaðar að við áttum helst ekki að geta svarað þeim og engan vegin í samræmi við það sem hefur farið fram í kennslustundum en það er mikil breyting frá 2 fyrri prófunum. Eftir að hafa setið undir skothríð kennarans í 15 mínútur var ég sendur fram á meðan kennarinn og sensorinn ræddu frammistöðu mína og annara í hópnum. Eftir um 5 mínútur hópurinn minn kallaður inn ( allir í einu) og þá hófst en ein skothríðin þar sem bæði kennarinn og sensorinn hraunuðu yfir okkur og bentu á allt það sem betur mætti fara og fanst mér hrokinn vera svo yfirgengilegur að ég átti varla til orð en þarna var setningum eins og “Why on earth would you do something like this” og orð eins og “lousy” kastað á okkur.  Eftir þetta gefur hann okkur einkunn byggða á því hvernig okkur gekk í prófinu og voru þær 2, 4, 7 og ég fékk 10 og lætur síðan fylgja með að sá sem fékk 2 hafi verið heppinn að fá þessa 2 og þar með ná áfanganum. En jæja þetta er búið og einkunnir eru semsagt þessar:

Forritun:12

Stærðfræði: 10

Rökrásir:10

Gefið er eftir 7 stiga skala og eru einkunnir -3, 0, 2, 4, 7, 10 og 12 og þurfum við að ná 2 til þess að standast prófið. (Ekki spurja mig af hverju það er hægt að fá -3) .

Núna tekur við 10 daga törn í því að finna út hvernig ég get gert sem minnst allan þennan tíma.

Ummæli»

No comments yet — be the first.