Jæja 22. júlí, 2008
Posted by Stulli in Blogg.1 comment so far
Þá er ég búinn að fá nóg af sjónvarpi í bili og ætla að snúa mér að bloggi aftur. Það hefur svosem fullt gerst síðan síðast en ég ætla bara að telja það helsta upp, eins og til dæmis verkefnaskil og próf í skólanum og íslandsferð.
Verkefnið gekk vel og fengum við 10 fyrir það. Eftir það kom prófið og gekk það bara fínt fyrir sig. 10 fyrir networking, 10 fyrir digital electronics og 7 fyrir forritun. Hefði reyndar viljað fá 12 fyrir networking og er ekki alveg sáttur við 7una en það þýðir bara að ég er með verkefni fyrir sumarið, æfa mig í forritun.
Konan útskrifaðist úr margmiðlunarhönnun 27. júní og óska ég henni til hamingju með það (þótt seint sé
en ég held að það sé í lagi þar sem ég gaf henni svo fína útskriftargjöf.
Íslandsferðin var vel heppnuð en það stóð aldrei til að ég færi en þar sem mér var boðið að koma í skiftum fyrir smá vinnuframlag ákvað ég að slá til.
Núna er hins vegar komið að aðalástæðu þessarar færslu en eins og flestir sem þekkja mig vita, þá hefur líkamlegt atgerfi mitt aldrei þvælst mikið fyrir mér og ég hef aldrei verið þekktur fyrir það að stunda íþróttir og leikfimi og undanfarið ár eða svo hef ég haft næstum viðvarandi bakverki og eftir að hafa farið til læknis komst ég að því að það er einfaldlega vegna þess að hversu lélegu líkamlegu formi ég er og ætla ég að reyna að laga það.
Um daginn rakst ég á heimasíðu sem heitir one hundred pushups og á þessari síðu er æfingaprógram sem á að hjálpa manni að komast í betra form og auka styrk á 6 vikum og markmiðið er að geta tekið 100 armbeygjur eftir þessar 6 vikur. Ég ætla semsagt að reyna við þetta prógram og að auki ætla ég að taka bæði maga og bakæfingar með til þess að reyna að styrkja neðri hluta búksins. Ég reikna reyndar ekki með að ná að klára 100 stykki eftir 6 vikur þó það sé auðvitað markmiðið en ég gef mér 7-8 vikur í þetta.
Og ástæðan fyrir því að ég er að segja ykkur frá þessu er einfaldlega sú að nú er ég búinn að láta alla vita af þessu og það er því ekki séns(miklu minni líkur allavega) að ég geti bara hætt við.
Prógrammið er þannig uppsett að maður tekur test áður en maður byrjar og svo aftur eftir viku 2 , 4, 5 og svo síðast viku 6 (sem ættu þá að vera 100 stykki).
Ég tók fyrsta testið áðan og voru það 14 armbeygjur sem ég náði og er það mun betri árangur heldur en ég bjóst við. Ég mun setja niðurstöðurnar úr þessum prófum hér á síðuna í framtíðinni.
Jæja ég er farinn að fá mér bjór.
