2 vikur liðnar. 10. ágúst, 2008
Posted by Stulli in Blogg.trackback
Jæja þá eru 3 vikur liðnar af þessu átaki mínu og þetta er mun erfiðara en ég bjóst við og þurfti ég að endurtaka fyrstu vikuna áður en ég gat haldið áfram í þá næstu. Semsagt 2 vikur búnar af prógramminu á 3 vikum. Jæja ég bjóst við að þurfa nokkrar aukavikur en ég held að þær verði fleiri en 2 eða 3. Í fyrsta prófinu náði ég 14 armbeygjum, 50 magaæfingum og 20 bakæfingum, þó að maga og bakæfingarnar hafi verið meira svona haldiðáframþangaðtilaðégnenntiekkimeira mæling. Núna rétt áðan var ég að taka annað próf og náði ég 20 armbeygjum, 110 maga og 30 bakæfingum en þær voru mældar eins og áður. 20 armbeygjur voru kanski ekki alveg það sem ég bjóst við miðað við hvernig vika 2 gekk en samt framför. Spilar kanski inní að ég hef kanski ekki verið nógu duglegur að borða í dag og fékk mér smá bjór í gær. þetta þýðir samt að ég fell niður um heila 2 flokka í prógramminu en mig vantaði bara geta 1 armbeygju í viðbót til að falla bara um 1 flokk.
Af öðru er annars allt gott að frétta. Fórum nokkrir félagar í gær að hjálpa einum með að endurbyggja hús sem hann hafði keypt og eftir það kíktum við á pöbbinn.
Á morgunn fer ég til Lundar að hjálpa bróður mínum með að bera inn búslóðina sína en hann var að flytja ásamt fjölskyldu þangað og er að fá gáminn á morgunn.
Anika Rut er að byrja í skólanum á miðvikudag og hefur verið undanfarna daga á fritidshjem en það er einskonar leikskóli þar sem sér um að koma börnum í og úr skólanum. Við semsagt förum með hana þangað á morgnana og sækjum hana síðan þangað seinnipartinn.
Heiða Dís er komin á dagpeninga frá lífeyrissjóðnum sínum á meðan hún leitar sér að vinnu og þýðir það að hún getur aðeins leyft sér að velja úr því sem hún vill sækja um og þarf ekki að flýta sér neitt.
Jæja nenni ekki að skrifa meira í bili.
Ummæli»
No comments yet — be the first.