jump to navigation

Góður vinur fallinn frá. 20. febrúar, 2008

Posted by Stulli in Blogg.
2 comments

Þar kom að því.

Einn af mínum traustustu vinum síðastliðinna 10 ára féll frá í gær.

Hér eru myndir af honum á góðum stundum.

Miðað við þessar myndir þá sýnist mér á öllu að Anika mun koma til með að sakna hans meira en við.

image

image

image

image

Image(053)

Blóm og kransar afþakkaðir en framlög vel þegin.

Skólinn kominn á fullt 17. febrúar, 2008

Posted by Stulli in Blogg.
1 comment so far

Jæja núna er skólinn kominn á fullt og er ég í 3 áföngum þessa önn, Rökrásir, Forritun og Netkerfi. Allir þessir áfangar eru síðan sameinaðir í eitt risastórt verkefni þar sem við eigum að búa til tölvu fyrir þrekhjól þar sem við eigum að geta sýnt ýmsar upplýsingar á skjá eins og hraða, hversu langt við höfum hjólað og púls. Fékk að vita það að það hefur eiginlega engum tekist að klára þetta verkefni almennilega áður og ætlum við að sjálfsögðu að breyta því.

Hópurinn er reyndar frekar stór en við erum 5 í honum, 2 Íslendingar, Norðmaður, Grikki og Rúmeni, en ég er bjartsýnn á að þetta eigi eftir að ganga ágætlega þar sem það er bara við Íslendingarnir sem erum með fjölskyldur þannig að hinir geta bara skipulagt sig í kringum okkur :) .

Heiða Dís á Íslandi þannig að það er bara ég og Anika á daginn og ég og G&T á kvöldin :) .

Fórum í planetarium í morgun en það er svona kúlubíó en það virkar þannig að við sitjum inni í risastórri kúlu og er myndinni varpað beint á veggin allt í kringum okkur. Fórum að sjá mynd um risaeðlurnar í þrívídd en áður en myndin byrjaði voru þau með smá sýningu á stjörnunum í kringum okkur og var það bara alveg eins og að vera úti undir berum himni að skoða stjörnurnar nema að þarna var hlýtt og var svona græn píla sem benti beint á stjörnurnar. Mikið auðveldara að finna þær sem var verið að tala um.

Risaeðlumyndin var eins og ég sagði í þrívídd og var mjög skrítið að sjá þetta svona en stundum voru hlutir svo nálægt okkur að maður ósjálfrátt lyfti hendinni til að koma við. Mjög skrítið.

 

En ég heppinn 17. febrúar, 2008

Posted by Stulli in Blogg.
add a comment

James Jenvo & Associates
Abrogates Josй Ortega y Gusset
37- 1°- B 28006 Madrid Spain.
Dear Sir,
Complement of the day. I am a solicitor at law. I am the personal Counsel to Mr. Michael , citizen of your country, who is chairman of multinational company here in Spain. Before his death on the 11th of march 2004 my client, his wife and their two children were killed by bomb blast through terrorist attack in Madrid train station all the occupant of the coach were killed. My client {Michael} deposited the sum of 11.7 million Euro in prime bank here in Spain. For himself, with the hope of transferring it to his country as soon as he is on leave.
Since his death I have made several inquiries to his embassy to locate any of my clients extended relatives this has also proved unsuccessful. After these several unsuccessful attempts, I decided to trace his last name over the Internet, to locate any member of his family hence I contacted you. I have contacted you to assist in repatriating the money left behind by my client before they get confiscated or declared unserviceable by the bank where these huge deposits were lodged. Particularly the bank has issued me a notice to provide the next of kin or have the fund confiscated within the next fourteen official working days since I have been unsuccessfully in locating his relatives.
I seek your consent to present you as the next of kin of the deceased since you have the same last names so that the proceeds of this fund valued at 11.7 million euro will be claimed by you and then you and I can share the money. 55% comes to me and 45% goes to you. All I require is your honest cooperation to enable us see this deal through. I guarantee that this will be executed under a legitimate arrangement that will protect you from any breach of the law.
Please get in touch with me by my email to enable us discuss further.
Best regards.
James Jenvo Esq.
( barr.jenvo1@hotmail.com )

5 millur handa kjellinum!!!

image

Loksins 22. janúar, 2008

Posted by Stulli in Blogg.
add a comment

Í dag gerði ég svolítið sem ég held að ég geti fullyrt að ég hafi ekki gert í allavega 10 ár. Eftir að hafa farið með Aniku á leikskólann settist ég niður fyrir framan sjónvarpið og hef setið þar í allan dag að spila Playstation. Prófin kláruðust í gær, og var ég ákveðinn í því að gera ekki neitt uppbyggilegt í dag og hef ég svo sannarlega staðið við það. Ef ég hefði ekki þurft að sækja Aniku aftur núna seinnipartinn og elda kvöldmat þá væri ég líklega ennþá að spila og ef Heiða Dís kemur ekki snemma heim í kvöld þá verður spilað aftur eftir mat.

En já prófin kláruðust í gær og þrátt fyrir að þetta hafi gengið vel er ég einstaklega ósáttur við framkvæmd síðasta prófsins, en fanst mér spurningarnar vera mjög ruglingslegar og eiginlega vera þannig orðaðar að við áttum helst ekki að geta svarað þeim og engan vegin í samræmi við það sem hefur farið fram í kennslustundum en það er mikil breyting frá 2 fyrri prófunum. Eftir að hafa setið undir skothríð kennarans í 15 mínútur var ég sendur fram á meðan kennarinn og sensorinn ræddu frammistöðu mína og annara í hópnum. Eftir um 5 mínútur hópurinn minn kallaður inn ( allir í einu) og þá hófst en ein skothríðin þar sem bæði kennarinn og sensorinn hraunuðu yfir okkur og bentu á allt það sem betur mætti fara og fanst mér hrokinn vera svo yfirgengilegur að ég átti varla til orð en þarna var setningum eins og “Why on earth would you do something like this” og orð eins og “lousy” kastað á okkur.  Eftir þetta gefur hann okkur einkunn byggða á því hvernig okkur gekk í prófinu og voru þær 2, 4, 7 og ég fékk 10 og lætur síðan fylgja með að sá sem fékk 2 hafi verið heppinn að fá þessa 2 og þar með ná áfanganum. En jæja þetta er búið og einkunnir eru semsagt þessar:

Forritun:12

Stærðfræði: 10

Rökrásir:10

Gefið er eftir 7 stiga skala og eru einkunnir -3, 0, 2, 4, 7, 10 og 12 og þurfum við að ná 2 til þess að standast prófið. (Ekki spurja mig af hverju það er hægt að fá -3) .

Núna tekur við 10 daga törn í því að finna út hvernig ég get gert sem minnst allan þennan tíma.

Home sweet home 5. janúar, 2008

Posted by Stulli in Blogg.
1 comment so far

Jæja þá er maður komin heim frá Íslandi eftir 2ja vikna ofát. Held að ég geti fullyrt að ég hafi aldrei fundið til svengdar á þessum tíma.  Vorum hjá tengdó á aðfangadag og mömmu á gamlárskvöld. Þurfti að taka með mér skólabækur og læra í jólafríinu og þó það hafi gengið ágætlega þá hefði það alveg getað gengið betur.

Fyrsta próf á mánudag og næsta þriðjudaginn 15. janúar. Þriðja og síðasta prófið er síðan 21. eða 22. janúar og er ég þá kominn í viku frí.

Flugið heim var allt í lagi ef frá er talið flugtakið. Fanst vélin vera að hækka sig frekar hægt og á tímabili jafnvel vera að tapa hæð. Hafði samt ekki neinar ofuráhyggjur af því þar sem ég sat við neyðarútgang.

Fiskarnir voru allir á lífi eftir að hafa verið skildir eftir einir síðan 26. desember og fékk ég hlýjar mótökur frá þeim er ég steig inn úr dyrunum. Var reyndar allur maturinn þeirra búinn en þeir átu bara gróðurinn í staðinn þannig að búrið er hálftætt eftir þá en það hlýtur að vera hægt að redda því við tækifæri.

Best að hætta þessu og fara að læra fyrir forritunarprófið.

Keppni 3. desember, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
3 comments

Nýjasta æðið hér á kollegiinu er að finna frægt fólk sem líkist mér. Vegna þess hef ég ákveðið að setja í gang keppni þar sem lesendum er boðið að finna myndir af frægu fólki sem líkist mér og pósta linkum hér í komment. Þeir sem koma með góða linka fá það í verðlaun að bjóða mér upp á bjór.

Bill Hader

Mér finnst Bill Hader ekkert mjög líkur mér en ef að það hefur hjálpað honum að koma sér á framfæri  þá so be it.

Alveg ótrúlegt. 26. nóvember, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
1 comment so far

Það bregst ekki að í hvert einasta skifti sem ég er búinn að sætta mig við það hvað daninn getur verið vangefinn stundum tekur hann sig til og hækkar viðmiðið.

Fór í búð í dag að versla og hljóðaði reikningurinn upp á heilar 82 krónur. Ég rétti henni 200 kall og segi síðan að ég eigi til 2 krónur þannig að ég geti fengið 120 kall til baka í staðin fyrir 118 ( fyrir ykkur sem eigið í vandræðum með að reikna). En afgreiðslustúlkan segir einfaldlega að það sé orðið of seint því hún sé búin að stimpla inn 200 og geti þar af leiðandi ekki tekið við þessum 2 krónum. Ég trúði þessu ekki og bað hana um að endurtaka þetta því ég var viss um að ég hefði misskilið hana.

Alveg ótrúlegt hvað þeir þurfa að gera mikið vesen út af hverjum einasta djöfuls hlut.

Eins gott hafa sjónina í lagi 23. nóvember, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
1 comment so far

proveryalka_zreniya-768460.jpg

Flight of the Conchords – Business time 21. nóvember, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
add a comment

Er þetta líkt mér? 15. nóvember, 2007

Posted by Stulli in Blogg.
2 comments

Þessi miði hefur hangið niðri í andyri síðustu daga og ég spyr, er þetta eitthvað líkt mér??

Ekki ég

Til samanburðar læt ég þessa hér fylgja með. Það skal tekið fram að það er jólabjór í glasinu.

Þetta er ég